Guðmundur Ólafsson

In by admin

Guðmundur Ólafsson leikari og rithöfundur tekur að sér veislustjórn. Hann er úrvalssöngvari og með eindæmum skemmtilegur og skeleggur veislustjóri og skemmtikraftur. Guðmundur var höfundur og leikari í einleiknum Tenórinn sem sýndur var við frábærar viðtökur fyrst i Iðnó og þá á Litla sviði Borgarleikhússins. Guðmundur starfar einnig sem rithöfundur og hefur m.a. fengið Íslensku barnabókaverðlaunin tvisvar sinnum. Guðmundur skrifaði og lék í Fornbókabúðinni og í fjölda bíómynda og áramótaskaupa.