Felix Bergsson

In by admin

Felix Bergsson er einn fjölhæfasti leikari þjóðarinnar, jafnvígur á leiklist, söng, skemmtanir fyrir börn og fullorðna, stjórn sjónvarps og útvarpsþátta og sem kynnir á stórum sem smærri viðburðum, jafnt á Íslandi sem og í Bretlandi.  Hann hefur verið aðalkynnir Íslensku tónlistarverðlaunanna í Borgarleikhúsinu og sjónvarpinu síðastliðin 3 ár og stjórnar nú vinsælum útvarpsþætti á Rás 2.

Felix hefur á undanförnum árum tekið að sér veislustjórn í æ ríkari mæli, bæði á íslensku og ensku.  Meðal viðskiptavina eru Icelandair, Landhelgisgæslan, Leikskólar Reykjavíkur, Hrafnista, MS, Háskólinn í Reykjavík, Félag lögreglumanna, ÍMARK, Íslendingafélagið í London, Actavis, Matís, HB Grandi, Askar Capital og Seðlabankinn.  Felix nálgast veislustjórn á hlýjan hátt og án þess að reyna að taka yfir veisluna.  Vellíðan veislugesta er aðalatriðið.  Brandarar og gamansögur sem hann segir eru ekki neðan beltis heldur er reynt að gleðja fólk á smekklegri máta.  Felix tekur gjarnan lagið fyrir veislugesti og hefur helst unnið með tónlistarmönnum eins og Karli Olgeirssyni, Jóni Ólafssyni og Pálma Sigurhjartarsyni.  Þá hefur hann aðstoðað starfsfólk fyrirtækjanna við skemmtiatriði.

Felix Bergsson lauk leiklistarnámi frá Queen Margaret University College í Edinborg árið 1991.  Hann hafði þá þegar vakið athygli sem söngvari Greifanna, meðal annars í hinu vinsæla lagi Útihátíð.  Felix fór í framhaldsnám í leiklist í Central School of Speech and Drama í London árin 1997 og 1998.

Felix hefur leikið jöfnum höndum í stóru leikhúsunum og með sjálfstæðum leikhúsum.  Meðal hans helstu hlutverka eru Júngkærinn í Íslandsklukku Halldórs Laxness, Tony í West Side Story, Þór í Gauragangi, Nornin í Skilaboðaskjóðunni, Eddy í Blóðbræðrum, Fattur í Hatti og Fatti, Láki í Íslensku mafíunni og Ljóti andarunginn í Honk.  Felix er meðal stofnenda leikhópsins Bandamanna, en sá hópur hefur sýnt víða um heim.  Þá stofnaði Felix leikhópinn Á senunni ásamt Kolbrúnu Halldórsdóttur.  Felix skrifaði og lék fyrsta verk hópsins, Hinn fullkomna jafningja, sem vakti feikilega athygli jafnt innanlands sem utan.  Þá fékk hópurinn hin íslensku leiklistarverðlaun, Grímuna, fyrir sýningu ársins, Kvetch, árið 2003 og Abbababb! árið 2006.  Langstærsta sýning hópsins til þessa er Kabarett sem var sýndur í Íslensku óperunni.

Felix hefur líka komið að gerð sjónvarpsefnis í þáttum eins og Slett úr klaufunum, Stundin okkar, Fyrirgefðu, Popppunktur og 6 til sjö.  Felix og Gunnar Helgason gerðu leikna 24 þátta röð fyrir RÚV, jóladagatalið Leitina að Völundi.  Samstarf Gunna og Felix á sviði vettvangi barnaefnis er landsfrægt og hafa þeir félagar sent frá sér myndbandsspólur, geisladiska og hljóðsnældur með leiknu efni.  Nýjasta ævintýrið heitir Sveitasæla og kom út í október 2003.  Þá lék Felix í kvikmyndunum Íslenska draumnum, Karlakórnum Heklu og Strákunum okkar.  Hann hefur skrifað barnabók, Ævintýrið um Augastein, fjögur leikrit sem ratað hafa á svið og ótal dægurlagatexta.