Þórunn Lárusdóttir er landsþekkt leik- og söngkona. Hún hefur starfað við öll helstu leikhús landsins, í sjónvarpi og kvikmyndum. Hún hefur mikla reynslu sem veislustjóri, er skemmtikraftur, söngkona og grínisti. Hún hefur mjög gott vald á ensku og hefur stjórnað fjölmörgum veislum á þeirri tungu, bæði hérlendis og erlendis. Hún leggur mikið upp úr því að hver veisla sé einstök, skemmtileg og sniðin að þörfum veisluhaldara!
