Okið undan sjálfum mér

Okið undan sjálfum mér er hreinskilinn fyrirlestur þar sem leikarinn Björgvin Franz lýsir því hvernig hann náði að breyta eigin vinnubrjálæði yfir í innri ró og raunverulega starfsánægju. Hann veltir því upp hvernig maður nær þeim árangri að verða betri starfskraftur með því að eyða færri klukkustundum í vinnunni en meiri tíma með fjölskyldu vinum.  Aðferðirnar sem Björgvin styðst við hafa verið notaðar til að þjálfa afreksíþróttafólk og forstjóra stærstu fyrirtækja heims til að öðlast betri árangri í sínu fagi sem og í lífinu. 

Björgvin Franz útskrifaðist með MLS gráðu  (Master of Liberal Studies) frá University of Minnesota 2015. Björgvin kennir meðal annars í Stjórnendanámi Stjórnendafræðslunnar og hefur gert síðan 2019 ásamt Eddu Björgvinsdóttur. 

Lengd fyrirlesturs: 30 – 45 mín

Sendið fyrirspurnir á SNILLI@SNILLI.IS