Lalli töframaður

In by admin

Það er hreinlega ótrúlegt hversu vel Lalli nær til barna!!! (enda er hann kallaður, ofvaxna barnið, af vinum sínum). Lalli byrjaði feril sinn sem töframaður á Því að koma fram í barnaafmælum, enda gerir hann gjörsamlega allt vitlaust í hvert sinn sem hann stígur fæti inní barnaafmæli

Á svokölluðum fjölskylduhátíðum má segja að Lalli sé á heimavelli. Hann hefur gefið af sér góðann orðstír að koma fram á  sýningum þar sem blanda af ungu, fullorðnu og rosa fullorðnu fólki er komið saman. Lalli nær að skemmta öllum hópum í einu og oftar en ekki hrekkur fólk einfaldlega við  að sjá skemmtikraft ná svona vel til allra aldurshópa.

Sjón er sögu ríkari